top of page

Fimmtudagskvöld

Untitled design.gif

Góði Guð.


Ég þakka þér fyrir þennan dag. Þakka þér fyrir að ég fékk að vakna í morgun og lifa fram á kvöld. Viltu hugga alla þá sem hafa misst vini sína eða ættingja og syrgja. Viltu hugga alla þá sem kvíða nóttunni og leyfa þeim að finna þig og þann frið sem þú gefur. Ef það er eitthvað, Drottinn, sem ég hef gert og þér líkar ekki þá bið ég þig að fyrirgefa mér. Ef ég hef komið illa fram við einhvern án þess að taka eftir því, þá bið ég þig að fyrirgefa mér, og ég bið þig líka að hjálpa þeim að fyrirgefa mér sem ég hef sært.Hér er ég, Drottinn. Gerðu mig eins og þú vilt hafa mig. Taktu gallana burt úr fari mínu og mótaðu mig eins og þú vilt. Ég þakka þér fyrir að áætlun þín er mér fyrir bestu. Þú elskar mig eins og ég er og þú hefur máttinn til að laga það sem betur má fara. Góða nótt, Jesús.


Í Jesú nafni, amen.

bottom of page